30 stig
laugardagur 19.nóvember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 121 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Fríða í sandinum
Leikur liðanna var nokkuð sveiflukenndur og byrjuðu Þróttarstúlkur mun betur og unnu þær fyrstu hrinuna nokkuð örugglega. Allt stefndi svo
í þróttarsigur í annarri hrinunni. Þá var Fríða Sigurðardóttir, sem alla jafna leikur á miðjunni, færð í
stöðu kantsmassara. Hugrún Óskarsdóttir tók svo stöðu Fríðu á miðjunni. Við þessa breytingu fóru hlutirnir að
ganga hjá HK. Fríða skoraði stig í öllum litum og stórleikur hennar dugði til að snúa leiknum og að lokum hafði HK betur.
Stigahæst í liði HK var Fríða Sigurðardóttir með 30 stig. Næstar komu þær Berglind Gígja Jónsdóttir og
Þórey Haraldsdóttir með 11 stig hvor. Hjá þrótti var Fjóla Rut Svarsdóttir stigahæst að vanda með 15 stig.
Það gerist ekki oft að leikmaður skori yfir 30 stig í leik, sérstaklega þegar bara eru leiknar 4 hrinur. Við erum að reyna að muna eftir
hærra stigaskori hjá konunum. Hvert skyldi vera stigametið hjá konunum í 1 leik? Einhver sem veit það.




