Afreksbúðirnar gengu vel
sunnudagur 05.september 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 127 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
BLÍ stóð fyrir afreksbúðum fyrir 14-17 ára unglinga um helgina.
Rúmlega 60 krakkar mættu í búðirnar og var mikið fjör að vanda. Magnús Aðalsteinsson var aðalþjálfari og honum til
aðstoðar voru unglingalandsliðsþjálfararnir Apostol Apostolov og Zdravko Demirev. Fleiri þjálfarar lögðu fram vinnu enda þarf mikinn fjölda
fólks til að halda utan um svo stóran hóp. Búðirnar voru skipulagðar af Yngriflokkanefnd BLÍ.
Að sögn Magnúsar stóðu krakkarnir sig vel og var hann ánægður með hvernig til tókst. Við spurðum Magnús hvort henn hefði
séð marga efnilega blakara í afreksbúðunum. "Já, já, það eru alltaf efnilegir krakkar innanum. Ég er búinn að sjá
þónokkra sem geta náð langt í íþróttinni. Það er hinsvegar ekkert öruggt í þessu og það verður enginn
góður í íþróttum nema vera duglegur að æfa". Samhliða æfingunum fengu krakkarnir fræðslu um næringarfræði og
markmiðasetningu.




