Volleyball.is

Íslenska kvennalandsliðið tapaði öðrum 5 hrinu leik sínum í dag er liðið mætti Möltu. 

Mikasa

Fréttir

Bensínið kláraðist

Íslenska kvennalandsliðið tapaði öðrum 5 hrinu leik sínum í dag er liðið mætti Möltu. 

Liðið lék 5 hrinu leik í morgun gegn Luxembourg sem tók rúmlega 2 klst. Sá leikur tók sinn toll og var það greinilegt á síðari leik liðsins í dag. Stúlkurnar frá Möltu voru hinsvegar úthvíldar og gerði það gæfumuninn. Íslenska liðið á að vinna Möltu á venjulegum degi en sá dagur var ekki í dag. Þrátt fyrir hetjulega baráttu í leiknum varð íslenska liðið að sjá á eftir sigrinum til heimaliðsins í oddarhrinu sem tapaðist 14-16. Leikurinn stóð í 2 klst. 

Eftir daginn í dag er ljóst að Ísland á enga möguleika á því að komast í úrslitakeppnina á næsta ári en tvö efstu liðin úr riðlinum fara áfram. 

Síðasti leikur liðsins er við Írland kl. 12.00 á morgun. 


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

_mg_4471.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn