Ársþing BLÍ framundan
miðvikudagur 02.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 85 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
38. ársþing BLÍ fer fram laugardaginn 5. júní. Dagkrá þingsins má finna hér.
Ársþingið er æðsta stofnun hreyfingarinnar og því mikilvægt að störf þess gangi vel. Fyrir þinginu liggja að þessu
sinni fáar tillögur. Tillögur frá mótanefnd BLÍ ber hæst en þar er gert ráð fyrir breytingum á úrslitakeppninnni
þannig að vinna þarf 3 leiki í lokarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Mótanenfndin leggur til fleiri breytingar á reglugerðum og má sjá
þær á heimasíðu BLÍ. Þá verður til umræðu breytt reglugerð fyrir Öldungamót BLÍ. Öldungahreyfingin er komin
í öngstræti með sínar ákvarðanir og því er nauðsynlegt að Ársþing BLÍ samþykki nýja
reglugerð.
Fleiri mál munu eflaust koma til umræðu en þingið er vettvangur skoðanaskipta um öll mál sem skipta blakhreyfinguna máli.
Þingfulltrúar eru hvattir til að undirbúa sig vel fyrir þingið
þá verður kosið um 2 sæti í stjórn BLÍ og 3 sæti í varastjórn. Jason Ívarsson, formaður BLÍ, á
enn eftir 1 ár af sínu kjörtímabili og mun því sitja áfram.




