Volleyball.is

HK tók á móti KA í Mikasadeild kvenna í dag. Eins og vænta mátti vann heimaliðið nokkuð öruggan 3 - 0 sigur (25-17,25-20,25-22).

Mikasa

Fréttir

Auðvelt hjá HK

Auður Anna í uppgjöfinni
Auður Anna í uppgjöfinni
HK tók á móti KA í Mikasadeild kvenna í dag. Eins og vænta mátti vann heimaliðið nokkuð öruggan 3 - 0 sigur (25-17,25-20,25-22).

Með sigrinum komst HK í 27 stig og liðið er nú ósnertanlegt í efsta sætinu. Baráttan hjá konunum verður um sæti í úrslitunum. Afturelding stendur þar vel að vígi með 18 stig og ættu þær að vera öruggar inn. Þróttur R er í 3. sæti með 13 stig og með sigri á KA á morgun gæti liðið svo gott sem tryggt sig inn í úrslitin. Slagurinn stendur á milli Þróttar Nes, Stjörnunnar og Ýmis. KA stúlkur verma botninn og miðað við leikinn í dag er ekkert fararsnið á þeim þaðan.

Lið KA er skipað mjög ungum leikmönnum og ljóst að liðið vantar sárlega eldri leikmenn til að draga vagninn. Engu að síður hefur liðið náð að sýna ágæta kafla í vetur. Innan liðsins eru bráðefnilegir leikmenn eins og Auður Anna Jónsdóttir, sem gerði 19 stig í leiknum í dag. Alda Ólína Arnardóttir sýndi einnig ágæta takta bæði í sókn og vörn. Uppspilarinn Hólfmríður Ásbjarnardóttir lék einnig ágætlega í dag. 

Ekki reyndi mikið á HK liðið sem gat leyft sér þann munað að hvíla Fríðu Sigurðardóttur allan leikinn. Berglind Gígja Jónsdóttir, lék vel í dag fyrir HK og gerði 13 stig. HK liðið var skipað blöndu yngri og eldri leikmanna í dag. KA stúlkur náðu að bíta vel frá í þríðju hrinunni og höfðu forystu lengst af en skorti trú og kannski reynslu til að landa hrinunni.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn