Draumadráttur hjá karlaliði KA

Í dag var dregið í undanúrslitum í bikarkeppni BLÍ en það var Arngrímur Þorgrímsson forstjóri Betra Grips sem að fékk heiðurinn af því að stjórna drættinum.
Í undanúrslitum kvenna verður það lið Fylkis og KA sem mætast en KA stúlkur hafa á ungum og upprennandi spilurum að skipa og það er ljóst að það kann að vera KA stúlkum í hag að karlalið KA hefur gengið vel í vetur og aldrei að vita nema það smiti út frá sér. Það verða síðan HK og Þróttu N. sem að mætast í hinum undanúrslitaleiknum. Þar munu margir af reyndustu leikmönnum landsins leiða saman hesta sína og það er ljóst að ekkert er gefið í þeirri viðureign.
Í karlaflokki má segja að lið KA hafi fengið draumadrátt en liðið mætir Þrótti R., en þess ber að geta að KA getur tryggt sér deildarmeistaratitilinn á morgun þegar að liðið mætir HK. Í hinum undanúrslitaleiknum verður það Stjarnan og HK sem mætast en liðin hafa eldað grátt silfur saman síðustu árin.
Leikirnir fara fram þann 13. og 14. mars en leikið verður í Laugardalshöllinni.



