Volleyball.is

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Mikasa

Fréttir

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Volleyball.is: Jason verða bikarúrslitaleikirnir sýndir í beinni sjónvarpsútsendingu?

,,Já þeir verða sýndir í beinni útsendingu i sjónvarpi allra landsmanna.”

Volleyball.is:  Var heiðursmannasamkomulagið einhvers virði eftir allt?

,,Já það sýndi sig á endanum.”

Volleyball.is: Hvað hefur þú orðið bikarmeistari mörgum sinnum?

,,Það má telja á fingrum beggja handa.”

Volleyball.is: Telur þú að blak sé á fallandi fæti í henni Reykjavík?

,,Það eru viss merki um það. Fram, ÍS og Víkingur eru ekki lengur með lið í keppni nema þá í eldri flokkum. Þróttur heldur sjó ennþá. Ánægjulegast er að sjá uppganginn hjá blakdeild Fylkis.”

Volleyball.is: Ertu sáttur við framgöngu þeirra hvít- og rauðröndóttu í vetur?

,,Ég vitna bara í gamlan liðsfélaga minn sem sagði gjarnan: Ja hver röndóttur.“

Volleyball.is: Gæturðu hugsað þér að leika sem frelsingi?

,,Já, sérstaklega miðað við það að með aldrinum færast sumir leikmenn aftar á völlinn. Svo er ekki amalegt að vera í hlutverki frelsara.”

Volleyball.is: Hvar telur þú að vaxtarbroddur framtíðarinnar liggi?

,,Hann er að sjálfsögðu í unga fólkinu. Það er gleðilegt að sjá að sífellt fleiri félög eru að taka upp Krakkablak.”

Volleyball.is: Er enginn áhugi hjá BLÍ að fá erlend mót til Íslands?

,,Að sjálfsögðu er það mikilvægt að fá erlend lið í heimsókn til landsins og stjórn BLÍ er með það í huga. Haustið 2008 var haldið glæsilegt NEVZA ungmennamót á Akureyri. Hins vegar er það kunnar er frá þarf að segja að það er vissum erfiðleikum háð að fá erlend lið til landsins.”

Volleyball.is: Áttu ennþá gamla Þróttara búninginn með auglýsingu frá tóbaksbúðinni Björk?

,,Já hann er til ennþá en auglýsingin er orðin ólæsileg vegna þess hve mörg granastökk ég hef tekið í búningnum. (Til útskýringar þá er granastökk íslensk þýðing á því sem kallað er tiger – stökk).”

Volleyball.is: Viltu deila einhverju eftirminnilegu atviki úr blakinu með lesendum?

,,Eitt sinn voru landslið karla og kvenna að fara í keppnisferð til Færeyja. Við brottför frá Reykjavík kom í ljós að farangur farþega var of þungur fyrir flugvélina. Þá settust menn á rökstóla og komust að því að liðin gætu skilið utanyfirgallana eftir. Þá sagði einn úr hópnum: Er ekki í lagi að létta farangurinn með því aðvera bara í göllunum? Þá þurfum við ekki að skilja þá eftir.“

Volleyball.is: Hvernig tilfinning er það að vera fastur í netinu?

,,Það er í lagi á meðan það er á þurru landi og gott að vita til þess að einhverjir verði til þess, fyrr eða síðar, að losa mig úr því.”

Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

throttur-ka__14_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn