Misheppnuð ákvörðun?
Það hafa margir orðnir agndofa á því að úrslitakeppni kvenna er leikin í 2-faldri umferð 4 efstu liða. Þessi aðferðafræði var við lýði fyrir mörgum árum síðan og var mikið gagnrýnd þar sem að henni fylgdi aukinn ferðakostnaður, og að auki fóru fram tilgangslausir leikir fyrir tómum húsum.
Það þarf ekki annað en að horfa á leik Þróttar í Neskaupstað og KA stúlkna fyrir skemmstu en þar vantaði meðal annars tvo af sterkari leikmönnum KA. Það er alltaf vandasamt verk að halda úti úrslitakeppni þar sem ekki er um beina úrslitaleiki að ræða og í raun geta úrslit verið ráðin áður en síðustu leikirnir fara fram. Það er líka vert að benda á að þegar að getumunur er á liðum þá er alltaf hættan á því að keppnin fari að snúast um að komast hjá dýrum ferðalögum. Hvar eru menn staddir þá? Væri ekki betra að leika þá hreina úrslitakeppni upp á 3 unna leiki? Hafa áhorfendur og fjölmiðlar áhuga á úrslitakeppni sem hefur lítinn tilgang?
Auvitað verða þeir sem eru ábyrgir fyrir slíkum ákvörðunum að færa rökin fyrir þeim aukna kostnaði sem af hlýst, sérstaklega í því árferði þar sem að bæjarfélög og fyrirtæki landsins hafa lokað á styrki og annan stuðning. Það er líka mikilvægt að samfella og samkvæmni sé í mótahaldinu og ekki sé mismunandi fyrirkomulag á úrslitakeppnum karla og kvenna.




