Volleyball.is

Lið Ítalíu heldur áfram í undanúrslit, U-19 ára heimsmeistaramótsins sem nú fer fram á Ítalíu eftir að hafa lagt lið Púrtó Ríkó 3-1 í síðasta leik A-riðils. Með þeim áfram fer lið Túnis sem að skellti Egyptum 3-1 í sínum síðasta leik í riðlinum.

Mikasa

Fréttir

Ítalía, Argentína, Íran og Rússland áfram

Ítalir fagna sigrinum á Egyptum
Ítalir fagna sigrinum á Egyptum

Lið Ítalíu heldur áfram í undanúrslit, U-19 ára heimsmeistaramótsins sem nú fer fram á Ítalíu eftir að hafa lagt lið Púrtó Ríkó 3-1 í síðasta leik A-riðils. Með þeim áfram fer lið Túnis sem að skellti Egyptum 3-1 í sínum síðasta leik í riðlinum.

Í B-riðli náðu ríkjandi heimsmeistarar frá Íran að koma til baka eftir að hafa tapað óvænt fyrir liði BNA og lið Serbíu tókst að komast áfram á kostnað BNA með betra skorhlutfall.

Í C-riðli voru það Argentínumenn sem að voru afgerandi og unnu alla sína andstæðinga en Spánverjar kræktu í annað sætið á meðan Frakkland og Alsír sátu eftir með sárt ennið.

Í D-riðli bar það helst til tíðinda að Rússland vann alla sína andstæðinga nokkuð sannfærandi á meðan Indland kom á óvart með því að tryggja sér sæti í undanúrslitunum eftir fimm hrinu þriller á móti liði Brasilíu og liði Póllands laut einnig lægra haldi fyrir Indverjum 3-2. Úrslit riðilsins hljóta að vera Brasilíumönnum vonbrigði.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn