Volleyball.is

Íslenska kvennalandsliðið hóf í dag leik á EM Smáþjóða. Liðið leikur í 5 liða riðli sem leikinn er á Möltu.

Mikasa

Fréttir

Erfið byrjun hjá stúlkunum

Íslenska kvennalandsliðið hóf í dag leik á EM Smáþjóða. Liðið leikur í 5 liða riðli sem leikinn er á Möltu.

Ísland sendir ungt og efnilegt lið til keppni og lagt er af stað með hóflegar væntingar. Í dag mætti Ísland liði San Marino og lét í lægra haldi 1 - 3 (25-23,11-25,14-25,18-25). 

Eins og tölurnar bera með sér fór íslenska liðið vel af stað en svo var líkt og botninn dytti úr leik liðsins. Það sem varð liðinu að falli í dag voru of mörg mistök í móttöku og uppgjöfum. Þær Auður Anna Jónsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir léku í dag sinn fyrsta landsleik og komust báðar vel frá sínu. Hjördís Marta Óskarsdóttir fær einnig sinn fyrsta landsleik skráðan en hún kom ekki við sögu í dag. Byrjunarlið Íslands var þannig skipað: Kristín Salín, Birna Baldursdóttir, Fríða Sigurðardóttir, Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, Helena Kristinsdóttir og Auður Anna Jónsdóttir.

"Það var svolítið stress í gangi og of margar uppgjafir sem fóru í súginn. Við náðum aðeins að koma okkur inn í leikinn aftur í síðustu hrinunni. Við vitum að við getum betur og erum staðráðnar í að sýna það á morgun" sagði Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir í samtali við Volleyball.is stuttu eftir leikinn við San Marino.

Þrátt fyrir tapið í dag er góður hugur í stúlkunum og eru þær staðráðnar í að gera betur á morgun en þá leikur liðið 2 leiki. Í fyrramálið kl. 9.00 mætir liðið Luxembourg, sem talið er sigurstranglegasta liðið í keppninni, og síðar um daginn er svo leikið við heimamenn á Möltu. 


Önnur úrslit í dag urðu þau að Malta lagði Írland 3 - 0 og þá lagði Luxembourg Möltu einnig 3 - 0.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn