Volleyball.is

Evrópukeppnin hófst um helgina hjá smáþjóðunum þegar A riðillinn var leikinn hjá konunum. Leikið var í smáríkinu  Liechtenstein. Þess má geta að Ísland leikur í B riðli og fer hann fram um næstu helgi á Möltu.

Mikasa

Fréttir

Færeysku stúlkurnar úr leik

Færeyska liðið
Færeyska liðið
Evrópukeppnin hófst um helgina hjá smáþjóðunum þegar A riðillinn var leikinn hjá konunum. Leikið var í smáríkinu  Liechtenstein. Þess má geta að Ísland leikur í B riðli og fer hann fram um næstu helgi á Möltu.

Auk heimamanna mættu til leiks Skotar, Kýpverjar og Færeyingar. 2 efstu sætin gefa þátttökurétt í úrslitakeppninni sem fram fer í Luxembourg á næsta ári. Lið Kýpur var í sérflokki og vann alla sína leiki á sannfærandi hátt, 3 - 0. Færeyingar náðu bestum árangri á móti þeim, skoruðu 48 stig. Skotar náðu sér ekki á strik í keppninni og enduðu í neðsta sætinu. Baráttan var hinsvegar um annað sætið á milli Liechtenstein og Færeyinga en liðin áttust við í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni. Heimamenn reyndust sterkari á endanum og tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni að ári. Öll úrslit má sjá hér.

Skemmtilega frásögn af leik Færeyja og Skotlands má finna á heimasíðu færeyska sambandsins. Volleyball.is leyfir sér að grípa niður í þá lýsingu enda kemur svona lesning flestum í gott skap. Færeyingar lifðu hættulega í leiknum og þegar við grípum niður í lýsinguna er staðan 2 -1 í hrinum frændum vorum í vil. Skotar hafa hinsvegar komist í 24 - 21 í fjórðu hrinu:

"Nógv stóð á føroyska liðnum í 4. setti í gjár móti Skotlandi, tá føroyska liðið var aftanfyri 24-21, og Skotland hevði havt settbólt.

Og tað gjørdist ikki minni spennandi, at tað skuldi verða Karina Poulsdóttir Debes, sum skuldi serva, tí servurnar hava higartil ikki rættuliga verið hennara sterkasta síða - men øllum hesum vísti Karina
aftur, hóast at tey flestu sótu og hugdu burtur, tá hon fór fram at serva! Hon sendi tríggjar servir á rað djúpt aftur í 1-ara hornið - júst sum tað var lagt upp til í taktikkinum - og hetta var við til at bjarga liðnum undan einum tapi. Gleðin stálaði út av henni, tá dysturin var liðugur."

Það verður ekki af Færeyingum tekið að þeir berjast ávallt til síðasta blóðdropa og hefur barátta og leikgleði verið þeirra vörumerki í gegnum tíðina. 



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn