Volleyball.is

Seinni undankeppnin í bikarnum fór fram á Akureyri um helgina. Óvænt úrslit litu dagsins ljós og var hart barist um laus sæti í undanúrslitunum.

Mikasa

Fréttir

Fjör í bikarnum

Seinni undankeppnin í bikarnum fór fram á Akureyri um helgina. Óvænt úrslit litu dagsins ljós og var hart barist um laus sæti í undanúrslitunum.

Hjá körlunum höfðu lið Þróttar R og HK þegar tryggt sig inn í undanúrslitin. KA, Stjarnan, Fylkir og Þróttur Nes börðust um hin 2 sætin. Þróttarar fóru vel af stað og lögðu KA menn 2 - 1 í fyrsta leik mótsins. Þeim fataðist hinsvegar flugið í framhaldinu. KA menn stóðu uppi sem sigurvegarar á heimavellinum og Stjörnumenn fóru einnig nokkuð sannfærandi áfram. 

Spennan var ennþá meiri í kvennaflokknum þar sem 6 lið börðust um 2 sæti. Afturelding og Þróttur Nes tryggðu sig áfram í fyrstu keppninni. Fyrirfram var reiknað með að HK færi auðveldlega áfram og að keppnin væri um síðasta sætið á milli Þróttar R og Stjörnunnar. HK stúlkur tryggðu sér vissulega  sæti í undanúrslitunum en með mun meiri fyrirhöfn en reiknað var með. Liðið vann Eikarkonur 2 - 1 og tapaði svo fyrir Þrótti R 2 - 0. Aðra leiki vann HK nokkuð sannfærandi. Þróttur R tapaði fyrir KA 2 - 0 í fyrsta leik og reyndist það afar dýrkeypt þegar upp var staðið. Eikarkonur komu mest á óvart í mótinu með góðri frammistöðu sem skilaði þeim sæti í undanúrslitunum. Virkilega vel gert hjá þeim og í reynd afar eftirtektarvert í því ljósi að liðið er skipað leikmönnum sem voru uppá sitt besta fyrir 15 -20 árum síðan! Það er áhyggjuefni fyrir 1. deildarliðin (þróttur R, Stjarnan, KA, Ýmir)  hvers vegna þau ná ekki að klára lið eins og Eik og til merkis um það að gæði í leik þeirra eru ekki nægjanleg. Þjálfari Eikar er Hulda Elma Eysteinsdóttir, sem nú leikur með Þrótti Nes. Hulda Elma lék með Eik í fyrri undankeppninni í bikarnum og er  ekki gjaldgeng lengur í þeirri keppni vegna félagaskiptareglna.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn