Fjörið var á pöllunum

HK lagði KA í MIKASA deild karla, 3 - 1 (25-22,18-25,25-17,25-23)
KA menn mættu í Digranesið vitandi það að einn sigur dygði þeim til að tryggja þeim deildarmeistaratitilinn. Jason Ívarsson, formaður BLÍ, var mættur á staðinn, tilbúinn að afhenda bikarinn færi svo að KA ynni leikinn. Til þess kom þó ekki þar sem HK gerði sér lítið fyrir og lagði KA í fjórum hrinum. KA menn byrjuðu leikinn ágætlega en HK piltar svöruðu fyrir sig og unnu fyrstu hrinuna 25-22. KA svaraði fyrir sig með því að vinna á næstu 25-18. Eftir það var sem allur vindur og áhugi væri úr liðinu. HK menn gengu á lagið og unnu næstu 2 hrinur nokkuð sannfærandi.
Hinn ungi Orri Þór Jónsson átti prýðisleik hjá HK og gerði alls 19 stig. Næstur honum kom gamla brýnið Brynjar Júlíus Pétursson með 15 stig. Hjá KA var Piotr allt í öllu og gerði hann 31 stig í leiknum. Leikurinn bar þess engin merki að mikið væri í húfi fyrir liðin. Lítil stemmning var á vellinum og á það við um bæði liðin.Stemmningin var hinsvegar betri á áhorfendapöllunum. KA menn mættu með vaska sveit ungra manna sem sungu hástöfum allan leikinn. Þeir sungu gleði- og hvatningarsöngva, að hluta frumsamda og höfðu meðferðis sönghefti. Þeir virtust hafa undirbúið sig betur fyrir leikinn en liðið sem lék á vellinum. Þrátt fyrir alla hvatninguna náðu KA menn sér ekki almennilega í gang. Þeir eiga þó enn eftir leiki við Stjörnuna og Þrótt og dugir þeim sigur í öðrum þeirra.



