Góð byrjun hjá karlalandsliðinu
laugardagur 19.júní 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 83 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
Karlalandsliðið lagði San Marino í fyrsta leik sínum í EM smáþjóða sem fram fer á Möltu.
Íslenska liðið fór rólega af stað í leiknum en náði að klóra sig til baka í fyrstu hrinunni sem tapaðist naumlega 24-26.
Íslenska liðið vann þá næstu 25-23 og tók eftir það öll völd á vellinum. Góður 3 -1 sigur á San Marino sem oft
hefur reynst okkur Íslendingum erfiður ljár í þúfu. Strákarnir mæta svo Möltu í kvöld og sigur í þeim leik tryggir
Ísland inn í úrslitakeppnina á næsta ári. Byrjunarlið Íslands í gær var þannig skipað: Valur Guðjón, Emil,
Róbert, Kristján, Hafsteinn og Brynjar. Luxembourg vann Möltu nokkuð örugglega í 3 hrinum.



