Volleyball.is

Breski landsliðsmaðurinn Beter Bakare hefur lagt mikið á sig til að auka stökkkraftinn. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa.

Mikasa

Fréttir

Gott að geta hoppað!

Breski landsliðsmaðurinn Beter Bakare hefur lagt mikið á sig til að auka stökkkraftinn. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa.

Bakare er hluti af breska liðinu sem æfir nú af kappi fyrir Ólympíuleikana 2012 í London. Bretar fá að vera með í keppninni, enda á heimavelli. þeir hyggjast þó ekki taka þátt bara til uppfyllingar heldur hafa þeir undirbúið lið sitt af kappi undanfarin misseri. Karlalandslið Breta lék t.d. í belgísku deildinni í vetur. Liðið tók þátt í Evrópukeppninni en tókst ekki að komast áfram í sínum riðli. 

Á meðfylgjandi myndböndum má sjá Bakare sýna tilþrif. Hér má sjá hann kafblokka félaga sinn þannig að boltinn kemur yfir netið úr hávörninni! Hér má svo sjá viðtal sem fréttamaður BBC tók og Bakare gerir sér lítið fyrir og hoppa yfir hann!


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

fylkir_-_ka__28_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn