Helena valin íþróttamaður Þróttar

Árið 2011 var gott ár hjá Helenu í blakinu. Hún var einn af máttarstólpum í meistaraflokki kvenna sem vann þrefalt á keppnistímabilinu og er því Íslands-, bikar- og deildarmeistari með Þrótti.
Helena spilaði með 3 landsliðum á árinu. Hún var valin í A - landslið kvenna sem keppti á smáþjóðaleikunum í Lichtenstein. Þá var hún í fyrsta U - 19 ára landsliði Íslands í strandblaki kvenna sem keppti á Norðurlandamóti í Drammen í Noregi. Að lokum spilaði hún með U - 19 ára landsliðinu á Norðurlandamóti í Færeyjum í nóvember þar sem þær urðu í 3ja sæti. Í vináttuleik við Færeyjar eftir mótið var hún valinn besti leikmaðurinn í þeim leik.
Helena byrjaði 9 ára að æfa blak hjá blakdeild Þróttar og aðeins 15 ára gömul hóf hún að æfa og spila með meistaraflokki kvenna.Hún er fyrirmynd allra ungmenna, góður íþróttamaður, stundar heilbrigt líferni og er ábyrg og metnaðarfull í því sem hún tekur sér fyrir hendur. Helena hefur svo deilt þekkingu sinni og hæfileikum með þjálfun annarra blakara samhliða því að auka og efla sjálfa sig sem íþróttamann.




