Volleyball.is

Lokaleikurinn í riðlinum að hefjast í Digranesi. HK gegn ÍF Fuglafirði frá Færeyjum. Við reiknum með heimasigri hér - leyfum okkur að vona allavega.

Mikasa

Fréttir

HK - ÍF

Lokaleikurinn í riðlinum að hefjast í Digranesi. HK gegn ÍF Fuglafirði frá Færeyjum. Við reiknum með heimasigri hér - leyfum okkur að vona allavega.

úrslit leiksins skipta ekki máli í keppninni. Vinni HK í dag yrði það fyrsti sigur liðsins í NEVZA keppninni frá upphafi. Líklega fyrsti sigur liðsins á liði utan Íslands!

Það er fámennt á pöllunum í dag - en vonandi verðu góð stemning engu að síður.

Leikurinn er hafinn. Færeyingarnir byrja.
5 - 2 HK byrjar betur
8 - 4 Tæknihlé. HK fer vel af stað. Einar með ás og Alli með blokk í gólf.
12 - 10 Færeyingarnir eru að hressast eftir dapra byrjun.
16 - 12 Tæknihlé. Ágætt spil hjá HK. Færeyingar með nokkur klaufamistök.
19 - 16 Einar Sig með ágætan leik og nokkur stig. Maggi kemur inná hjá ÍF.
23 - 18 ÍF tekur leikhlé. HK með góð tök á leiknum núna.
25 - 19 Öruggur sigur HK í fyrstu hrinunni. Einar með síðasta stigið úr sókn.

Hrina 2 að hefjast óbreytt lið.
5 - 5 Andreas með ás. Færeyingarnir mun sprækari núna.
8 - 7 Tæknihlé. Mikið af mistökum hjá báðum liðum núna.
12 - 9 ÍF tekur leikhlé. Bæði lið gera mikið af mistökum. Sem betur fer fyrir HK þá gerir ÍF fleiri. Bæði lið geta betur.
14 - 13 2 sóknir í súginn hjá HK. Maggi kemur inn fyrir Andreas.
15 - 16 Alli  með sókn í netið. HK hefur farið illa með góð færi nú síðustu mínuturnar. þurfa að taka sig á ef ekki á illa að fara.
19 - 19 Þessi hrina getur farið á hvorn veginn sem er. Kolbeinn inn fyrir Alla. Mistök á mistök ofan. Vill hvorugt liðið vinna?
23 - 22 Alex með hávörn. Nær HK að fylgja þessu eftir og klára hrinuna?
24 - 23 Kolbeinn slær úr en Færeyingarnir fóru í netið
26 - 25 Orri heldur HK á floti núna - jæja gat klárað hrinua en hitti ekki völlinn.
27 - 29 ÍF hefur jafnað leikinn 1 - 1 Slæm spilamennska hjá HK kostaði hrinuna. ÍF hefur barist vel og áttu sigurinn skilið.
Þriðja hrinan er hafin.
2 - 6 ÍF byrjar mun betur
6 - 8 Tæknileikhlé. HK piltar aðeins að hressast.
14 - 16 ÍF með frumkvæðið í hrinunni. það er lítið að frétta af leik HK. Leikur liðsins er einfaldlega lélegur þessa stundina. Lítur ekki vel út fyrir HK.
19 - 17 HK að hressast núna - sem betur fer.
23 - 19 Lítur vel út núna. Mikilvægt að klára þessa hrinu.
25 - 21 HK komið í 2 - 1. Góður lokasprettur bjargaði hrniunni hjá HK. Vonandi byrjar sú næsta á svipuðum nótum.
Fjórða hrinan hafin
6 - 5 Maggi kominn inn fyrir Andreas.
11 - 6 ÍF tekur leikhlé. Maggi með hávörn og Orri með 2 stig úr sókn. 
16 - 8 HK er að keyra yfir Færeyingana núna. Allt annað að sjá til piltannan núna.
18 - 12 smá ströggl núna.
22 - 14 Stefnir í sigur HK
23 - 15 Einar með hörkusmass í gólfið
25 - 16 HK vinnur leikinn 3 - 1

Vel gert hjá HK. Fyrsti sigurinn staðreynd!








Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn