HK - Middelfart
föstudagur 04.nóvember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 92 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Að leik loknum
Örfáar mínútur í leik. Liðin að heilsast. Miðað við það sem við höfum séð hér í upphitunni er
ljóst að HK á erfiðan leik fyrir höndum.
Middelfart byrjar með boltann. HK tekur fyrsta stigð - Einar Sig.
3 - 0 fyrir HK. Byrjar vel.
4 - 4 Danirnir að koma til.
6 - 6 HK er vel með í leiknum.
6 - 8 technical time out. 2 klaufaleg stig hjá HK.
7 - 9 góð barátta hjá HK
9 - 11 HK hefur fengið 2 stig eftir ranga uppstillingu hjá Dönunum!
11 - 14 Danirnir herða aðeins tökin
11 - 16 móttakan slæm hjá HK. Middlefart pressar mikið í uppgjöfum
14 - 19 góð sókn hjá HK.
15 - 21 HK er enn með.
18 - 25 Middelfart vinnur fyrstu hrinuna. Nokkuð sannfærandi hjá þeim. HK er að gera of mörg mistök. Engu að síður ágæt
frammistaða hjá þeim
Önnur hrina er hafin. Óbreytt byrjunarlið. Ingó, Alex, Alli, Einar, Orri, Andreas. Reynir og Óli í Liberóstöðunni.
4 - 4 Góð byrjun hjá HK
6 - 7 hörkublak í gangi hjá báðum liðum. Móttakan betri hjá HK
8 - 7 Ingó með ás
8 - 11 Danirnir skella í lás í hávörninni
12 - 13 Alex með góðan skell
14 - 16 Ágætt spil hjá HK. 2 uppgjafir farnar á stuttum tíma samt.
16 - 19 Orri með góðan skell
18 - 23 HK með leikhlé. Nokkur klaufamistök hafa kostað stig
19 - 25 Middelfart komið í 2 - 0
HK piltar verða að bæta sinn leik í þriðju hrinunni ef þeir ætla sér lengra. 6 uppgjafir í súginn í hrinunni er of
mikið. móttakan er á réttri leið og nokkrar ágætar sóknir hafa litið dagsins ljós.
Þriðja hrina byrjuð
0 - 5 HK með leikhlé. Gengur ekkert núna
2 - 8 Technical timeout. Danirnir eru að keyra yfir HK núna. Lítið sjálfstraust eftir hjá HK. Þurfa að sparka sér í gang aftur.
4 - 10 Kolbeinn kominn inn fyrir Alla
5 - 12 Maggi inn fyrir Andreas
7 - 16 Technical timeout. Leikur HK er hruninn.
11 - 22 Danirnir hafa skipt um uppspilara. Aðaluppspilarinn smassar núna. Hann er 202 cm á hæð!
16 - 25 Middelfart vinnur 3 - 0 HK lagaði stöðuna með 3 hávörnum í lokin.
Ágæt frammistaða hjá HK þrátt fyrir tap. Danska liðið er númeri of stórt.




