HK stingur af
mánudagur 05.desember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 156 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
2 leikir fóru fram í Mikasadeild kvenna um helgina. Nýliðar Aftureldingar fengu Ými í heimsókn og Þróttarar tóku á móti
HK í Neskaupsstað.
Leikurinn í Mosfellsbæ var sýndur beint á Sporttv. Gott framtak hjá Aftureldingu sem vann leikinn nokkuð örugglega 3 - 0. Með sigrinum fóru
þær í þriðja sætið með 9 stig, eins og Reykjavíkur Þróttur. Þróttarar hafa betra hrinuhlutfall og halda því 2.
sætinu. Ýmisstúlkur hafa fengið 6 stig í 5 leikjum og eru í 6. sæti.
HK stúlkur gerðu góða ferð austur og unnu Íslandsmeistarna í 4 hrinum. Leikurinn, sem var nokkuð jafn, var einnig sýndur beint á netinu.
Líklega er það sú þróun sem koma skal. Lið Þróttar hefur styrkst með tilkomu Huldu Elmu Eysteinsdóttur, sem gekk til liðs við
sitt gamla félag á dögunum. Hulda Elma var stigahæst í leiknum með 19 stig. Hjá HK var Fríða Sigurðardóttir stigahæst með 16
stig. Með sigrinum tryggði HK stöðu sína á toppi deildarinnar og vandséð að önnur lið nái að ógna þeim að
ráði. Baráttan um hin 3 sætin í úrslitakeppninni gæti hinsvegar orðið nokkuð hörð. Í reynd eiga öll hin liðin
möguleika á að komast í úrslitin.




