HK stúlkur deildarmeistarar
miðvikudagur 03.mars 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 133 - Athugasemdir (1) Senda á Facebook
Deildarmeistarar HK 2010
Liðin í efsta og neðsta sæti deildarinnar mættust í íþróttahúsi kennaraháskólans í gærkvöldi. Með
sigri gat HK tryggt sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að eiga 1 leik eftir við KA. Þróttarstúlkur áttu hinsvegar möguleika á
að lyfta sér úr neðsta sætinu með sigri. Fyrstu hrinunni lauk með öruggum sigri Þróttara og ekki var að sjá að himinn og haf
skyldi liðin að á stigatöflunni. Þróttarar léku líklega sitt besta blak í vetur og sýndu sjálfum sér og öðrum
að þær geta vel bitið frá sér. Góði kaflinn entist hinsvegar ekki nógu lengi og HK liðið svaraði hressilega fyrir sig með
því að vinna næstu 3 hrinur sannfærandi.
Hjá HK var Fríða Sigurðardóttir stigahæst með 18 stig og Karen Björg Gunnarsdóttir kom næst með 11 stig. Valdís Lilja
Andrésdóttir gerði 13 stig fyrir Þrótt og Fjöla Rut Svavarsdóttir 12 stig.
Volleyball.is óskar HK stúlkum til hamingjum með titilinn.



