Volleyball.is

HK tryggði sér deildarmeistaratitilinn í MIKASA deild kvenna með því að leggja Þrótt R að velli í gærkvöldi.

Mikasa

Fréttir

HK stúlkur deildarmeistarar

Deildarmeistarar HK 2010
Deildarmeistarar HK 2010
HK tryggði sér deildarmeistaratitilinn í MIKASA deild kvenna með því að leggja Þrótt R að velli í gærkvöldi.


Liðin í efsta og neðsta sæti deildarinnar mættust í íþróttahúsi kennaraháskólans í gærkvöldi. Með sigri gat HK tryggt sér deildarmeistaratitilinn þrátt fyrir að eiga 1 leik eftir við KA. Þróttarstúlkur áttu hinsvegar möguleika á að lyfta sér úr neðsta sætinu með sigri. Fyrstu hrinunni lauk með öruggum sigri Þróttara og ekki var að sjá að himinn og haf skyldi liðin að á stigatöflunni. Þróttarar léku líklega sitt besta blak í vetur og sýndu sjálfum sér og öðrum að þær geta vel bitið frá sér. Góði kaflinn entist hinsvegar ekki nógu lengi og HK liðið svaraði hressilega fyrir sig með því að vinna næstu 3 hrinur sannfærandi. 

Hjá HK var Fríða Sigurðardóttir stigahæst með 18 stig og Karen Björg Gunnarsdóttir kom næst með 11 stig. Valdís Lilja Andrésdóttir gerði 13 stig fyrir Þrótt og Fjöla Rut Svavarsdóttir 12 stig.

Volleyball.is óskar HK stúlkum til hamingjum með titilinn. 



Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

_mg_4816.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn