HK vann fyrsta leikinn
miðvikudagur 01.apríl 2009 - Lilja Margrét - Lestrar 143 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Ingibjörg á móti Erlu Rán
Stúlkurnar í Þrótti Nes byrjuðu leikinn af fullum krafti og náðu upp góðu forskoti í fyrstu hrinunni.
Hið reynda HK lið lét það þó ekki trufla sig og tókst með harðfylgi að jafna og var mikil spenna á loka mínútunum. Jafnt var í stöðunni 24-24 en reynslan hafði sigurinn og vann HK hana 26-24.
HK-stúlkur byrjuðu fyrstu hrinuna af sama krafti og þær höfðu lokið þeirri fyrri og voru komnar með nokkuð óverjandi forskot í stöðunni 21-7. Hinar ungu Þróttara stúlkur gáfust þó ekki upp og með mikill baráttu tókst þeim að minnka muninn í átta stig, 23-15. Lengra komust þær þó ekki og kláraði HK hrinuna 25-15.
Í þriðju hrinu snérist dæmið svo aftur við og Þróttur var komið með 13 stiga forskot í stöðunni 19-6. Þjálfari HK gerði breytingar inni á vellinum og dugði það til að þær tóku að draga á forskot Norðfirðinganna. Þrótti tókst þó betur upp en í fyrstu hrinunni, héldu forustunni og sigruðu þriðju hrinuna 25-19.
Enn snérist dæmið við í fjórðu hrinu en þá tók HK aftur forustuna og náðu mest ellefu stiga mun í stöðunni 21-10. Þróttarastúlkur minnkuðu muninn en sigurinn var aldrei í hættu. HK tryggði sér sigur í fjórðu hrinunni með 25 stigum gegn 17 og þar með leikinn 3-1.
Leikurinn var hinn skemmtilegasti áhorfs og var mikil barátta í báðum liðum og gekk boltinn oft lengi á milli í skorpunum. Þróttur Nes, sem er með yngsta liðið í 1. deild kvenna, var að sýna frábæra varnarvinnu á vellinum og þegar meiri grimmd verður komin í sóknirnar og hávörnina má búast við að erfitt verði að sigra þær.
Stigahæst í leiknum í kvöld var sú elsta í Þrótti, Miglena Apostolova, með 17 stig en næst á eftir henni kom Erla Rán Eiríksdóttir með 13 stig. Uppspilarinn hjá Þrótti, Kristína Salín Þórhallsdóttir, var einnig að sýna mjög góðan leik. Hún sýndi það og sannaði að hún verðskuldaði titilinn sem besti uppspilarinn í vetur. Í liði HK var Ingibjörg Gunnarsdóttir stigahæst með 13 stig en næstar á eftir henni komu Zaharina Filipova og Dagbjört Víglundsdóttir með 10 stig hvor. Dagbjört hefur lítið verið að spila með HK liðinu í vetur, en í kvöld kom hún sterk inn á ögurstundu og skilaði fullkomlega sínu.
Næsti leikur liðanna verður á Neskaupstað kl. 20 á föstudaginn. Búast má við hörkuleik, þar sem Þróttarastúlkur eru þær einu sem tókst að vinna HK í deildinni í vetur en þær gerðu það á heimavellinum.




