Íslendingar í úrslitum
mánudagur 07.nóvember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 85 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Birta og félagar í Stod Volley
Tvíburabræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir komust áfram með liði sínu Marienlyst frá Danmörku. Þeir munu mæta
Middelfart (DK), Nyborg (NO) og Gentofte (DK). Þrjú dönsk lið og eitt norskt.
Elsa Sæný Valgeirsdóttir er komin í úrslitakeppnina með Holte og þar mun hún mæta Birtu Björnsdóttur og félögum
í Stod Volley frá Noregi. Önnur líð í úrslitum kvennakeppninnar eru Oslo Volley og Bröndby. Athygli vekur að ekkert sænskt lið komst
áfram og vekur það nokkra furðu. Helstu afsakanir Svíanna eru þær að kvennalandsliðið þeirra var að spila á sama tíma og
því vantaði nokkra sterka leikmenn. Engu að síður vel gert hjá dönsku og norsku liðunum. Finnar sendu ekki lið til keppni að þessu
sinni.
það verður spennandi að fylgjast með gengi íslendingaliðanna í úrslitunum.




