Volleyball.is

Lokaleikir MIKASA deildanna fóru fram um helgina. KA menn tryggðu sér deildarmeistaratitilinn.

Mikasa

Fréttir

KA menn deildarmeistarar

Lokaleikir MIKASA deildanna fóru fram um helgina. KA menn tryggðu sér deildarmeistaratitilinn.

KA tryggði sér efsta sætið í MIKASA deild karla með því að leggja botnlið Þróttar 3 - 0. Þróttarar áttu ekki möguleika gegn KA sem mætti með sitt sterkasta lið í leikinn. Þróttarar léku án þjálfara síns Michael Overhage. Að leik loknum afhenti Jason Ívarsson, formaður BLÍ, Hilmari Sigurjónssyni, fyrirliða KA, bikarinn fyrir sigur í MIKASA deildinni. Þetta er fyrsti titill KA manna í 16 ár og víst að honum verður vel fagnað. KA liðið varð síðast deildarmeistari 1994 er liðið lék undir stjórn Stefáns Jóhannessonar, núverandi varaformanns BLÍ.

KA menn mættu svo Stjörnunni daginn eftir í Ásgarði í lokaleik MIKASA deildar karla. Greinilegt var að nokkrir leikmenn KA höfðu ekki farið beint í háttinn eftir sigurinn gegn Þrótti kvöldinu áður og máttu nýkrýndir deildarmeistarar játa sig sigraði í fjögurra hrinu leik. Bæði liðin leyfðu yngri leikmönnum að spreyta sig í leiknum enda skiptu úrslit hans engu máli.



Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

undanurslit__36_of_64_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn