Volleyball.is

Karl Sigurðsson, formaður strandblaksnefndar BLÍ, hefur verið óþreytandi við að kynna strandblakið. Árangur erfiðisins farinn að koma í ljós.

Mikasa

Fréttir

Kalli flottur!

Karl Sigurðsson, formaður strandblaksnefndar BLÍ, hefur verið óþreytandi við að kynna strandblakið. Árangur erfiðisins farinn að koma í ljós.

Karl var í viðtali í þættinum H og M á Rás 2 í gærmorgun. Þar fór hann yfir stöðu mála og fræddi þáttastjórnendur og hlustendur um íþróttina. Þar kom m.a. fram að í fyrra voru alls um 300 manns sem stunduðu strandblak og nú eru um 30 lið sem stunda íþróttina af kappi. Fyrir skömmu var svo umfjöllun um strandblakið og útbreiðslu þess í Fréttablaðinu, á FM957 og einnig í Morgunblaðinu þar sem birt var heilsíðugrein. Afar jákvæð þróun hefur verið í strandblakinu og nauðsynlegt að fylgja því vel eftir. Það er á ábyrgð BLÍ að styðja við bakið á íþróttinni og nauðsynlegt að skrifstofa BLÍ og stjórn taki meiri þátt í þeirri vinnu sem unnin er á þessum vettvangi. Þótt Karl hafi verið mest áberandi í þessu starfi hefur hann gott fólk með sér sem hefur gert þetta mögulegt. Má þar nefna Einar Sigurðsson, Brynjar Pétursson, Þóreyju Haraldsóttur og Heiðbjörtu Gylfadóttur. 

Enn er mikið verk óunnið í strandblakinu en línan hefur verið lögð og framtíðin er svo sannarlega björt. Því má svo bæta við að Ísland mun taka þátt í forkeppni Ólympíuleikanna í fyrsta sinn síðar í sumar og er stefnt að því að senda 2 karlalið og 2 kvennalið til keppni. 


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn