Kvennalið HK fer í NEVZA keppnina
mánudagur 12.júlí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 172 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
HK fagnar sigri sl. vetur
Lið HK varði Íslandsmeistaratitil sinn sl. vetur auk þess að vinna bæði deild og bikar. Til að viðhalda góðum árangri þarf
sífellt að finna ný viðmið. Það er markmiðið með þátttöku HK í keppninni að "máta" sig við önnur
meistaralið af Norðurlöndunum auk þess sem slík þátttaka hvetur leikmenn og aðstandendur félagsins til dáða. Ingibjörg
Gunnarsdóttir, formaður blakdeildar HK, staðfesti í samtali við Volleyball.is að kvennalið HK myndi taka þátt í keppninni. Leikirnir fara fram
dagana 5. - 7. nóvember. Leikstaður liggur ekki fyrir en líklegast verður að teljast að HK lendi í riðli sem leikinn verður í
Danmörku.
NEVZA Club Championship er arftaki Norðurlandamóts félagsliða og var sett á laggirnar í núverandi mynd árið 2007. Lið frá
Svíþjóð og Danmörku hafa verið áberandi mörg í keppninni en Norðmenn, Finnar og Eistar hafa einnig sent lið, auk
Íslands.
Ísland getur sent 2 lið til keppni bæði í karla- og kvennaflokki. Bæði Stjarnan og Þróttur R hafa tekið þátt í
karlakeppninni (2008). Volleyball.is er ekki kunnugt um þátttöku fleiri íslenskra liða að þessu sinni.




