Volleyball.is

Leifur Harðarson var aðstoðardómari í grannaslag Dana og Svía í undankeppni Evrópumóts kvenna. Leikurinn fór fram í Kaupmannahöfn sl. laugardag.

Mikasa

Fréttir

Leifur stóð sig vel

Úr leik Svía og Dana
Úr leik Svía og Dana
Leifur Harðarson var aðstoðardómari í grannaslag Dana og Svía í undankeppni Evrópumóts kvenna. Leikurinn fór fram í Kaupmannahöfn sl. laugardag.

Svíar unnu leikinn nokkuð örugglega 3 - 0 og reyndi ekki mikið á dómara leiksins. Leifur lenti hinsvegar í meiri vanda með heimferðina en vegna öskugoss þurfti hann að fara í gegnum Glasgow og þaðan til Akureyrar. 

Danir höfðu vænst betri úrslita í leiknum og ætluðu sér áfram í keppninni. Leikið er heima og að heiman og sigurvegarinn úr þeim viðureignum kemst inn í riðlakeppnina. Í riðlinum bíða Rúmenía, Belgía og Slóvenía. 

Danir þurfa nú að vinna útileikinn 3 - 0 með 19 stiga mun til að komast áfram. Miðað við frammistöðuna í fyrri leiknum verður það að teljast borin von. Svíar eru með betra lið en Danir og unnu örugglega þrátt fyrir tefla ekki  fram sínu besta liði. Í liðið vantaði flesta atvinnumennina einhverra hluta vegna. Sænska liðið er byggt upp í kringum meistaraliðið Engelholm en 4 stúlkur úr byrjunarliðinu kom þaðan. Íslendingar gátu fylgst með leiknum í gegnum volleyball.dk. Síðari leikurinn verður einnig í beinni útsendingu á netinu af heimasíðu sænska blaksambandsins. Í sænska liðinu er m.a. Sara Petterson sem lék með unglingalandsliðum Svía fyrir 2 árum m.a. gegn Íslandi. Petterson lék allan leikinn gegn Dönum og stóð sig vel. 


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

throttur-ka__52_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn