Leikið um bronsið
laugardagur 12.nóvember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 89 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook

Nicole, Kristina og Berglind
Stúlkurnar mæta Noregi kl. 10.00 í dag og piltarnir mæta Færeyingum kl. 14.30. Færeysku stúlkurnar komu á óvart í gær er
þær lögðu Norðmenn í æsispennandi 5 hrinu leik. Að vonum ríkir hér mikil ánægja með þá frammistöðu.
Þó íslensku liðin leiki ekki til úrslita þá eiga Íslendingar sína fulltrúa á leikjunum. Sævar Már Guðmundsson
verður aðstoðardómari á karlaleiknum og aðaldómari í kvennaleiknum. Þjálfari færeysku stúlknanna er Magnús Helgi
Aðalsteinsson.
Volleyball.is mun færa ykkur fregnir af gengi liðanna í dag.




