Meiðslahættan einna minnst í blaki

Rannsókn sem var gerð á Ólympíuleikum 2004 hefur leitt í ljós að meiðslahættan er mun minni í blaki en öðrum Ólympíuíþróttum. Þegar kemur að fóta og ökklameiðslum þá er minni hætta á slíkum meiðslum hjá blakmönnum samanborið við fótbolta, handbolta og körfubolta.
Niðurstöðurnar eru mjög jákvæðar fyrir blakíþróttina, sérstaklega þegar að meiðslatíðnin er líka minni en í mörgum einstaklingsíþróttum. Það er því ljóst að blakíþróttin fer vel með leikmenn og langtíma heilsu þeirra, en finna má dæmi um leikmenn sem spila langt fram á fimmtugsaldurinn eins og greint hefur verið frá áður. Þessi þáttur er sjaldan í umræðunni á Íslandi og mætti halda meira á lofti í allri meiðslaumræðu fjölmiðla sem að skrifa stundum stórar greinar um heilsufar einstakra leikmanna á meðan önnur umfjöllun situr á hakanum.
Rannsóknina má finna hér: http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC2672073/ sjá töflu 1.



