Volleyball.is

Stjarnan lagði Þrótt R í 5 hrinu leik (20-25,25-18,24-26,25-21,15-12).

Mikasa

Fréttir

MIKASA deild karla. Þróttarar lagðir í Ásgarði

Stjarnan lagði Þrótt R í 5 hrinu leik (20-25,25-18,24-26,25-21,15-12).

Úrslit leiksins skiptu kannski ekki miklu máli uppá stöðu liðanna í deildinni en bæði liðin vildu vinna leikinn og var hart barist til loka. Stjörnumenn mættu ekki til leiks í fyrstu hrinunni og Þróttarar komust á bragðið og unnu hrinuna sannfærandi.  Stjarnan lagaði stöðuna með því að vinna aðra hrinuna. Þeir voru svo komnir vel á veg með þá þriðju þegar yngri leikmönnum var skipt inná. það er sjálfsagt mál að leyfa yngri leikmönnum að taka þátt og eiga þjálfarar liðanna að nýta hvert tækifæri til þess. Skiptingarnar slökktu hinsvegar alveg viljann hjá Stjörnumönnum sem misstu hrinuna úr greipum sér og töpuðu 24-26. Þróttarar skynjuðu nú möguleika á að landa sínum öðrum sigri í vetur. Þeir börðust eins og ljón og náðu að halda í við heimamenn framundir 20 stigin. Eftir það seig á ógæfuhliðina hjá þeim og Stjarnan tryggði sér oddahrinu. Oddahrinan varð spennandi og bæði lið áttu ágæta spretti en svo fór að lokum að Stjörnumenn höfðu betur, 15-12. Með sigrinum komust Stjörnumenn í 10 stig en Þróttarar sitja áfram á botninum með 2 stig. 

Emil Gunnarsson gerði 23 stig fyrir Stjörnuna og þjálfarinn Róbert Hlöðversson 22. Hjá Þrótti var þjálfarinn Michael Overhage stigahæstur með 19 stig og Aron Bjarnason gerði 17 stig. 


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

ka-throttur__30_of_86_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn