Volleyball.is

Þróttarstúlkur lönduðu sínum fyrsta sigri í vetur með því að leggja Stjörnuna 3 - 1 (25-22,15-25,25-20,26-24).

Mikasa

Fréttir

MIKASA deild kvenna Þróttur R - Stjarnan

Þróttarstúlkur lönduðu sínum fyrsta sigri í vetur með því að leggja Stjörnuna 3 - 1 (25-22,15-25,25-20,26-24).


Fyrirfram var reiknað með jöfnum leik og hörðum enda bæði liðin án sigurs. Sú varð raunin og ekki virðist mikið sem skilur liðin að. Þróttarstúlkur byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinuna 25-22. Stjörnustúlkur svöruðu fyrir sig og unnu næstu hrinu sannfærandi 15-25. Þróttarstúlkur mættu ákveðnar til leiks í þriðju hrinunni og náðu að klára hana 25-20. Fjórða hrinan bauð svo upp á mikla spennu og Stjörnustúlkur voru ekki á því að gefast upp. Liðin fylgdust að lengst af og var hart barist á báða bóga. Þróttarstúlkur höfðu svo sigur að lokum 26-24. Bæði lið áttu ágæta spretti en móttakan var of brothætt hjá Stjörnunni og er það hlutur sem þær verða að laga í sínum leik. Stigahæstar í leiknum voru þær Valdís Lilja Andrésdóttir hjá Þrótti með 18 stig og Hjördís Eiríksdóttir hjá Stjörnunni einnig með 18 stig.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn