Volleyball.is

Blakfólk lét hendur standa fram úr ermum um helgina. 64 leikir fóru fram í deildakeppni BLÍ.

Mikasa

Fréttir

Mikið blakað um helgina


Blakfólk lét hendur standa fram úr ermum um helgina. 64 leikir fóru fram í deildakeppni BLÍ.
Þetta sýnir vel hversu mikið blakhreyfingin hefur stækkað á undanförnum árum. 

Fjölmargir leikir fóru fram í MIKASA deildunum auk þess sem leikið var í 2. deildinni og þeirri þriðju. Þrátt fyrir slæmt veður og þæfingsfærð fóru allir leikirnir fram og öll lið skiluðu sér á leiksstað. Skellurnar frá Ísafirði létu sig t.d.  ekki muna um að mæta á Hvolsvöll en þar var leikin  túrnering í 3. deildinni. Þær kalla ekki allt ömmu sína fyrir Vestan! 

Í MIKASA deild kvenna var leikin heil umferð. Þróttur Nes gerði sér ferð í höfuðborgina og mætti nöfnum sínum úr Reykjavík á föstudagskvöldið. Norðfirðingar unnu leikinn 3 - 1 en virkuðu ekki sannfærandi. Lið Reykjavíkur Þróttara var hálf andlaust og náði ekki að setja alvöru pressu á Norðfirðingana. Allt sjálftraust vantar í þær röndóttu en þær geta leikið mikið betur þær sýndu þarna. Sanngjarn sigur hjá Þrótti Nes.

Á laugardaginn léku Norðfirðingar aftur og nú við meistaralið HK. HK vann leikinn 3 - 0 en lifðu nokkuð hættulega um tíma. Lið HK hefur mikla breidd og vandséð hvaða lið getur ógnað þeim í úrslitakeppninni - nema þá helst KA. Norðfirðingar léku á Erlu Ránar Eiríksdóttur sem er meidd í baki og óvíst hvort hún leikur meira með liðinu á þessu tímabili. Það munar um minna.

Karlalið HK tók á móti Stjörnumönnum á laugardag og sem fyrr léku liðin 5 hrinur. HK hafði á endanum sigur en leikurinn gat farið á hvorn veginn sem var. HK hefur nú lokið leikjum sínum í deildinni og hefur 16 stig líkt og KA. KA á hinsvegar 2 leiki til góða og dugir sigur í öðrum þeirra til að verða Deildarmeistarar. Lið Stjörnunnar endar í þriðja sæti þó liðið eigi einn leik eftir gegn KA. Leikur Stjörnumanna hefur farið batnandi í vetur og þeir gætu bitið frá sér í úrslitakeppninni.

Ýmir tók á móti Stjörnunni á laugardag í MIKASA deild kvenna. Þessi leikur fór einnig í 5 hrinur og lauk með sigri Stjörnustúlkna sem þarmeð unnu sinn annan sigur í vetur. Með sigrinum lyftu þær sér úr botnsætinu sem þær hafa vermt í allan vetur. Sigurinn kemur á góðum tíma fyrir Stjörnustúlkur og mun eflaust auka hjá þeim sjálfstraustið fyrir úrslitakeppnina/fallslaginn.

Á sunnudaginn tók svo KA á móti Fylki í MIKASA deild kvenna. Fylkisstúlkur sáu aldrei til sólar í þeim leik sem lauk með öruggum sigri KA  3 - 0. Með sigrinum lyfti KA sér upp í annað sæti deildarinnar. 

Á sunnudaginn fór fram framhaldsskólamót sem er liður í íþróttavakningu framhaldsskólanna. 8 lið mættu til leiks sem er heldur færra en vonir stóðu til. Úrslitakeppnin fer svo fram 19. mars. Lið MK vann riðilinn sem leikinn var í Digranesi í Kópavogi en lið VMA fór með sigur af hólmi fyrir Norðan en leikið var á Laugum. 

Þá fór fram grunnskólamót á Akureyri en nemendur í 7. og 8. bekk grunnskóla bæjarins tóku þátt. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem þessi keppni er haldin og er þetta lofsvert framtak hjá Akureyringum. Fleiri mættu taka sér þetta til fyrirmyndar.


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

ka-stjarnan__53_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn