Volleyball.is

Ísland tapaði naumlega fyrir Luxembourg í morgun í 5 hrinum, 21-25,25-18,21-25,25-22,14-16). Leikurinn stóð í 129 mínútur!

Mikasa

Fréttir

Naumt tap gegn Luxembourg

Ísland tapaði naumlega fyrir Luxembourg í morgun í 5 hrinum, 21-25,25-18,21-25,25-22,14-16). Leikurinn stóð í 129 mínútur!

Eftir slæmt tap gegn San Marino í gær voru stúlkurnar staðráðnar í að gera betur í næstu leikjum. Allt annar bragur var á leik liðsins gegn firnasterku liði Luxembourgar. Liðið gerði mun færri mistök, sóknarleikurinn var öflugur og með smá heppni hefði leikurinn getað unnist. Það er ánægjulegt að sjá að íslenska liðið er á pari við það sem best gerist í Smáþjóðadeildinni. Nú tekur við nokkurra tíma hvíld en liðið leikur gegn Möltu síðar í dag. Dagurinn verður langur og erfiður fyrir lykilleikmenn Íslands og mikilvægt að vel gangi að skipta leiktímanum á milli leikmanna. Það mun því reyna meira á varamenn liðsins í leiknum gegn Möltu. Volleyball.is mun flytja nánari fregnir af liðinu síðar í dag. 

Apostol Apostolov, þjálfari íslenska liðsins, gerði eina breytingu á byrjunarliðinu en Hjördís Eiríksdóttir úr Stjörnunni kom inn í stað Auðar Önnu Jónsdóttur úr KA. Birta Björsdóttir, uppspilari úr HK, kom svo mjög öflug inn í fjórðu hrinu. Hún náði að setja mark sitt á leikinn með góðri baráttu og skynsemi í uppspilinu. Flestir leikmenn liðsins tóku einhvern þátt í leiknum en búast má við að allar stúlkurnar fái að spreyta sig gegn Möltu síðar í dag. 


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

stjarnan-throttur__47_.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn