Volleyball.is

Íslensku liðin mættu Færeyingum í seinni leik dagsins. Nokkur seinkum varð reyndar á leikjunum þar sem báðir leikir Norðmanna og Dana fóru í 5 hrinur. Skemmst er frá því að segja að íslensku liðin steinlágu fyrir þeim Færeysku, 3 - 0. 

Mikasa

Fréttir

NEVZA U19 Ísland - Færeyjar

pepp í gangi
pepp í gangi
Íslensku liðin mættu Færeyingum í seinni leik dagsins. Nokkur seinkum varð reyndar á leikjunum þar sem báðir leikir Norðmanna og Dana fóru í 5 hrinur. Skemmst er frá því að segja að íslensku liðin steinlágu fyrir þeim Færeysku, 3 - 0. 

Leikir Íslands og Færeyja hafa oft verið spennandi í gegnum tíðina og hafa liðin skipst á að hafa sigur. Leikir kvöldsins náðu því miður aldrei að verða spennandi - til þess var munurinn á liðunum alltof mikill. 

Færeysku stúlkurnar hreinlega völtuðu yfir þær íslensku sem átti fá svör. Apostol þjálfari var ekki sáttur við leik stúlkanna og reyndi hann ýmsar uppstillingar í leiknum. Allar stúlkurnar tóku þátt í leiknum. Sylvía Kolbrá, aðaluppspilari liðsins, hóf leikinn í dag en varð að játa sig sigraða vegna meiðsla áður en fyrsta hrinan var úti.  Hjördís Eiríksdóttir, fyrirliði liðsins, var stigahæst með 10 stig. Nicole Hannah átti góða innkomu undir lok leiksins. Hún átti nokkrar góðar sóknir og varnir og náði að hleypa lífi í leik liðsins. Engu að síður var það of lítið og of seint. Því miður fyrir Ísland voru lykilleikmenn ekki að finna sig í dag. Stúlkurnar þurfa að taka sig verulega á fyrir morgundaginn en þá er leikið við Dani.

Piltarnir léku svo lokaleik dagsins og lauk honum um 10 leytið. Íslenska liðið fór illa af stað í fyrstu hrinunni en náði svo að snúa henni við og átti góða möguleika á að vinna hana. Dýrkeypt mistök í blálokin urðu til þess að Færeyingarnir stálu henni 26 - 24. Leikur Íslands gaf síðan eftir og þrátt fyrir að 2 leikmenn Færeyja hafi farið útaf meiddir sóttur þeir í sig veðrið og gerðu út um leikinn á nokkuð sannfærandi hátt. Öruggur 3 - 0 sigur (26-24,25-18, 25-10). Á morgun er leikið við Dani sem unnu Norðmenn í 5 hrinu leik í dag. 


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn