NEVZA U19 kk Ísland - Danmörk
föstudagur 11.nóvember 2011 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 68 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
Leik Íslands og Danmerkur er nú nýlokið með öruggum 3 - 0 sigri Dana (25-15,25-13,25-11). Við ofurefli var að etja en piltarnir stóðu sig engu
að síður vel í leiknum.
Jóhann Eiríksson, fyrirliðið liðsins, lék ekki með í dag vegna meiðsla. Vonast er til að hann verði orðinn góður á
morgun þegar liðið leikur um 3. sætið, líklega við Færeyinga.
Leikurinn fór ágætlega af stað fyrir íslenska liðið sem hélt í við það danska fyrsta kastið. Smám saman dró
þó í sundur með liðunum og Danirnir fóru að klára sóknir sínar betur auk þess sem þeir pressuðu gríðarlega
í uppgjöfum. Danska liðið er mjög öflugt en flestir piltarnir leika saman í efstu deild í Danmörku. Stigahæstir í liði
Íslands í dag voru þeir Ágúst Máni Hafþórsson með 5 stig og Ragnar Már Garðarsson með 3 stig. Zdravko þjálfari
hreyfði liðið vel og allir fengu að spreyta sig í dag nema fyrirliðinn.




