Volleyball.is

Íslensku piltarnir lágu illa fyrir Norðmönnum í fyrsta leik sínum á NEVZA mótinu í Færeyum.

Mikasa

Fréttir

NEVZA U19 kk Ísland - Noregur

Íslensku piltarnir lágu illa fyrir Norðmönnum í fyrsta leik sínum á NEVZA mótinu í Færeyum.

Fyrirfram var vitað að róðurinn yrði erfiður og kom það í ljós. Norska liðið hafði nokkra yfirburði og lauk leiknum með öruggum norskum sigri 3 – 0 (25-12,25-10, 25-13). Allir íslensku piltarnir fengu að spreyta sig í leiknum.  Zdravko Demirev, þjálfari liðsins, var að leita að bestu uppstillingunni og breytti því liðinu nokkrum sinnum undir leiknum. Piltarnir sýndu ágæta tilburði inn á milli en munurinn á liðinum var einfaldlega of mikill til að þeir kæmust lengra með Norðmennina. Líklega munar ca. 10 cm á meðalhæð liðanna. Piltarnir mæta Færeyingum í kvöld og vonandi ná þeir sér vel á strik þá. Stigahæstir í liði Íslands voru þeir Jóhann Eiríksson með 7 stig og Lárus Jón Thorarensen með 5 stig.



Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn