Volleyball.is

Íslensku stúlkurnar mættu öflugu liði Dana sem fyrir leikinn var í efsta sæti riðilsins. Á því varð ekki breyting eftir leikinn sem endaði með döskum 3 - 1 sigri, (14-25,21-25,25-23,20-25).

Mikasa

Fréttir

NEVZA U19 kvk Ísland - Danmörk

Úr leik Íslands og Danmerkur
Úr leik Íslands og Danmerkur
Íslensku stúlkurnar mættu öflugu liði Dana sem fyrir leikinn var í efsta sæti riðilsins. Á því varð ekki breyting eftir leikinn sem endaði með döskum 3 - 1 sigri, (14-25,21-25,25-23,20-25).

Íslenskal liðið lék ágætlega í dag ef undan er skilin fyrsta hrinan þar sem liði náði sér ekki á strik. Danir, sem lögðu Færeyinga í morgun 3 - 1, byrjuðu með B-liðið sitt inná og ætluðu að eiga þægilegan dag. Það gekk vel framan af en íslenska liðið náði smám saman betri tökum á leiknum. Í þriðju hrinu náði Ísland góðu forskoti og náðu stúlkurnar að klára hrinuna þrátt fyrir smá taugatitring í lokin. Danir voru þá farnir að tína byrjunarliðið sitt inná. Í fjórðu hrinunni tóku Danir enga áhættu og stilltu upp sínu sterkasta liði. Þrátt fyrir það var Ísland með alla leið og með smá heppni hefði leikurinn getað farið í 5 hrinur. Engu að síður ágæt frammistaða hjá liðinu. Stigahæstar í dag með 8 stig voru þær Hjördís Eiríksdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir sem lék hálfan leikinn sem uppspilari á móti Sylvíu Kolbrá Hákonardóttur. María Gunnarsdóttir átti góða innkomu í dag í stöðu díó. Stelpurnar mæta líklega Færeyjum á morgun í leik um 3. sætið í keppninni og eru þær staðráðnar í að koma fram hefndum eftir slæmt tap í gærkvöld.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn