NEVZA U9 kvk Ísland - Noregur
Íslensku stúlkurnar léku gegn Noregi snemma í morgun. Leikurinn fór ágætlega af stað hjá íslenska liðinu sem hélt vel í við það norska. Undir lok fyrstu hrinunnar varð liðið fyrir áfalli þegar uppspilari liðsins, Silvía Kolbrá, snéri sig á ökkla og var að fara af leikvelli. Norðmenn gengu á lagið og unnu hrinuna 25-19. Ekkert gekk svo hjá Íslandi framan af annarri hrinunni og komust norsku stelpurnar í 20- 11. Þá var eins og eitthvað breyttist í leik íslenska liðsins og náðu þær að saxa verulega á þær norsku. Það dugði þó ekki til og tapaðist hrinan 25 – 21. Í þriðju hrinu kom íslenska liðið sterkt inn og sýndi sinn besta kafla í leiknum. Lauk hrinunni með öruggum sigri Íslands 25 – 20. Norsku stelpurnar fengu yfirhalningu í hléinu og mættu dýrvitlausar til leiks í fjórðu hrinunni. Því miður náði Ísland ekki að halda í við leik þeirra norsku þrátt fyrir ágæta spilamennsku á köflum. Norðmenn unnu fjórðu hrinuna nokkuð örugglega 25 - 17. Leiknum lauk því með 3 -1 sigri Norðmanna. Stigahæstar í liði Íslands voru þær Lilja Einarsdóttir með 8 stig, Hjördís Eiríksdóttir og Hugrún Óskarsdóttir með 7 stig. Berglind Gígja Jónsdóttir kom inn í uppspilið í þriðju hrinunni og kláraði leikinn í þeirri stöðu. Leysti hún það ágætlega af hendi. Íslenska liðið lék ágætlega í dag en á klárlega meira inni. Seinna í dag mæta þær íslensku Færeyingum og verður vafalítið um hörkuleik að ræða.




