Volleyball.is

Um helgina fer fram fyrsta umferð Norðurlandamóts félagsliða (Nordic Club Championship).

Mikasa

Fréttir

Norðurlandamót félagsliða

Um helgina fer fram fyrsta umferð Norðurlandamóts félagsliða (Nordic Club Championship).


21 lið er skráð til leiks 10 karlalið og 11 kvennalið. Því miður er ekkert íslenskt lið skráð til leiks en íslendingar hafa rétt á að senda 2 lið í hvorn flokk. Íslendingar munu þó eiga sína fulltrúa í keppninni þar sem 4 leikmenn taka þátt með sínum félagsliðum. 

Elsa Sæný Valgeirsdóttir mun leika með Holte sem heldur einn riðilinn. Elsa er að jafna sig af axlarmeiðslum og hefur tekið þátt í lekjum liðsins að undanförnu. Ásthildur Gunnarsdóttir mun leika með Fredriksberg Volley sem fer til Örebro í Svíþjóð. Ásthildur hefur ekki tekið mikinn þátt í leikjum liðsins en hefur þó fengið að spreyta sig. 

Tvíburabræðurnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir munu fara með liði sínu Aalborg Volley til Förde í Noregi. Þeir hafa báðir leikið töluvert með liðinu og því má telja næsta öruggt að þeir muni koma við sögu í leikjum liðsins um helgina. 

Þá mun Japaninn Takahashi Masayuiki, fyrrum leikmaður Þróttar,  leika með liði sínu Middelfart sem mun fara til Örkeljunga í Svíþjóð.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn