Volleyball.is

Um helgina fór fram riðlakeppninni í Norðurlandamóti félagsliða.

Mikasa

Fréttir

Norðurlandamót félagsliða - úrslit

Um helgina fór fram riðlakeppninni í Norðurlandamóti félagsliða.

Ekkert íslenskt lið tók þátt en nokkrir Íslendingar komu við sögu engu að síður. Um hörkukeppni var að ræða í öllum riðlunum. Öll úrslit og stöðu má sjá með því að fylgja hlekknum hér að neðan. 

Hjá körlunum komast áfram sigurvegarar riðlanna þriggja, Marienlyst (DK), Middelfart (DK) og  Falkenberg (S). Fjórða liðið í úrslit er svo Sollentuna (S) sem var með besta árangur liðanna sem lentu í öðru sæti. Lið tvíburanna Hafsteins og Kristjáns Valdimarssona, Aalborg Volley (DK), hafnaði í öðru sæti í sínum riðli og var aðeins 2 stigum frá því að komast í úrslitakeppnina. Aalborg vann lið Falkenberg en tapaði svo óvænt fyrir Förde (N). Því miður er þátttöku þeirra í keppninni þar með lokið. Volleyball.is hefur upplýsingar um gengi þeirra bræðra um helgina.

Hjá konunum fara áfram sigurvegarar riðlanna Tallin (EST), Somero (FIN) og Engelholm (S). Fjórða liðið áfram er svo Holte, lið Elsu Sænýjar Valgeirsdóttur, með besta árangur liðanna sem lentu í öðru sæti. Einungis munaði 1 stigi (1 bolta) á Holte og Örebro (S) sem situr eftir með sárt ennið. Elsa Sæný lék ekki með Holte vegna meiðsla í öxl.

Fredriksberg, lið Ásthildar Gunnarsdóttur, lék í Örebro ásamt Tallin og norsku meisturunum í Koll. Fredriksberg hafnaði í þriðja sæti með því að vinna Koll en varð að játa sig sigrað af Tallin og heimaliðinu í Örebro. Skv. heimildum Volleyball.is átti Ásthildur gott mót  og átti sinn þátt í góðum leikjum liðsins. 

Við þetta má svo bæta að Middlefart, lið fyrrum Þróttarans Masa, gerði sér litið fyrir og vann sinn riðil. Mikil sigling á Masa og félögum. 

Norðmenn sendu 4 lið til keppni en ekkert þeirra komst áfram í úrslitakeppnina. Vissulega vonbrigði hjá þeim og margir eru hugsandi um stöðu blaksins i Noregi eftir úrslit helgarinnar. 

Elsa Sæný Valgeirsdóttir verður svo eini fulltrúi Íslendinga í úrslitakeppninni sem fram fer í janúar 2010.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn