Volleyball.is

Eftir tvo sigra á Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar, tóku Blakfréttir viðtal við burðarstólpa KA liðsins síðan í fyrra og í dag stigahæsta mann 1. Deildarinnar, fyrirliðann Piotr Kempisty.

Mikasa

Fréttir

Nýr á toppnum!

Piotr Kempisty - stigahæsti maður 1. deildar karla í dag
Piotr Kempisty - stigahæsti maður 1. deildar karla í dag
Eftir tvo sigra á Íslands- og bikarmeisturum Stjörnunnar, tóku Blakfréttir viðtal við burðarstólpa KA liðsins síðan í fyrra og í dag stigahæsta mann 1. Deildarinnar, fyrirliðann Piotr Kempisty.
Piotr er kominn með 92 stig eftir 4 leiki, þar af 11 uppgjafir.  Hans líklegasti keppinautur um toppsætið er stigakóngurinn síðan í fyrra  Masayuki Takahashi, en hann er með 39 stig og tvo leiki til góða.
Við byrjuðum á að spurja hvort hann væri ánægður með leiki helgarinnar. Hann sagðist vera ánægður með að þeir skyldu hafa náð 6 stigum úr leikjunum, en var ekki alveg sáttur við frammistöðu liðsins eftir sem áður. Sagði að um of mikið af mistökum hefði verið að ræða og að vörnin hefði ekki verið nægjanlega góð. Jafnframt að frammistaða þeirra, eins og í leikjum helgarinnar, mundi ekki duga til að sigra Þróttara.
Aðspurður um KA liðið í heild sagði Piotr að liðið hefði eflst verulega síðan í fyrra, Till væri kominn inn í liðið sem gerði það að verkum að menn legðu sig meira fram þar sem samkeppnin væri nú orðin meiri.  Hann sagði að það væru þrír titlar í boði, deildarmeistara-, Íslandsmeistara- og bikarmeistaratitillinn og að þeir KA menn ætluðu sér þá alla og hefðu fulla möguleika á að ná því markmiði.  Þegar Piotr var spurður um meiðsl á baki sem hann virtist verða fyrir í leiknum og hvort það kæmi til með að hamla honum í vetur, en hann átti aðeins við slík meiðsl að stríða í fyrra, var svarið einfalt:  „Nei, nei, ég hef svo góðan lækni hérna“.
Þegar við spurðum hann um blakið á Íslandi í dag var ekki eins gott í honum hljóðið.  „Það er á niðurleið, liðunum hefur fækkað síðan í fyrra úr fimm í fjögur og liðin eru alls ekki að fá nógu marga leiki, eins og hjá þeim í KA þar sem allt að mánuður líður á milli leikja“.   Eins var hann mjög ósáttur við það að blakið skuli ekki fá neina umfjöllun í fjölmiðlum.  Sama hversu oft hann fletti íþróttasíðum blaðanna sæi hann aldrei neitt minnst á blak, og ekki væri umfjöllun í sjónvarpinu heldur.  Fannst honum að þetta þyrfti verulega að bæta hérna hjá okkur á klakanum.
Hann telur að til að framtíð blaksins á Íslandi eigi möguleika þurfi að ráða inn fleiri erlenda þjálfara fyrir yngri kynslóðina.  Að þjálfunin hérna sé ekki nógu góð fyrir þau, það þurfi að kenna þeim réttar hreyfingar og hvernig á að spila blakið frá grunni.  Einnig finnst honum að börn og unglingar fái engan veginn næga keppnisþjálfun, þar sem einungis örfá mót séu haldin fyrir þau og að þar séu landsbyggðarkrakkarnir í verri stöðu en þau sem búa á þéttbýlari svæðum.
Fréttaritari tekur undir þessi síðustu orð og hvetur blaklið og grunnskóla á Íslandi til að halda fleiri barna- og unglingamót.
Að lokum kom hin sígilda spurning: „Af hverju Ísland?“.  Svarið var að eftir að hafa verið í atvinnumennsku í fjölda ára hafi honum fundist tilvalið að koma hingað til Íslands og „setjast í helgan stein“.  Hérna sé blakið meira áhugamál en vinna þar sem hann fái ekkert greitt fyrir að spila í fyrsta skiptið á ævinni,  en Piotr sem er núna að nálgast 30 hefur aldrei, fyrr en hér á Íslandi, unnið við annað en að spila blak.  Við spurðum hann einnig um íslenska landsliðið, álit hans á því og hvort hann myndi íhuga það að spila með því ef tækifæri gæfist.  Hann sagðist ekki þekkja mikið til þess, en mundi að öllum líkindum ganga til liðs við landsliðið ef sá möguleiki væri í boði. 

Með þessum orðum lauk viðtalinu og vilja Blakfréttir þakka Piotr fyrir þetta litla spjall við okkur og vonumst við til að hægt verði að útvega honum, og fleiri erlendum leikmönnum, ríkisborgararétt hið fyrsta því að slíkur liðsmaður væri gífurlegur styrkur fyrir annars ágætt landslið.

Þar sem mistök geta átt sér stað við þýðingu, vonar fréttaritari að allt hafi komist rétt til skila.




















































Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

hk-throttur_nes__19__1.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn