Ollir þú tjóni?
þriðjudagur 18.maí 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 173 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
Ástríður Valbjörnsdóttir, Fylkiskona, varð fyrir því óláni að bíllinn hennar skemmdist á bílastæðinu
fyrir utan íþróttahúsið í Mosfellsbæ. Þetta gerðist meðan á öldungamótinu stóð. Meðfylgjandi er
lýsing hennar á aðstæðum.
Ég lagði bílnum mínum, dökkblár Nissa Maxima TG 523, eftir hádegi á fimmtudegi í skástæði í grasbrekkunni áður en beygt er inn á bílastæðisplanið íþróttahússins að Varmá á öldungamótinu um helgina.
Það lítur út fyrir að ljósi jeppinn sem var lagt við hliðina á mínum bíl hafi nuddast utan í bílstjórahurðina þegar hann beygði út úr stæðinu.
Það er greinilegt að jeppinn var ennþá með nagladekk þar sem rispur og djúp för eru eftir nagla ásamt lit af jeppanum.
Vonast ég eftir því að sá aðili sem olli tjóninu sé heiðarlegur og hafi samband í síma 6978090.
Með kveðju,
Ásta V.




