Volleyball.is

Danska liðið Middelfart vann í dag öruggan 3 - 0 (25-17.25-17.25-15) sigur á ÍF frá Fuglafirði í Færeyjum. Leikurinn var liður í riðlakeppni NCC, Norðurlandamóti félagsliða og fór fram í Digranesi.

Mikasa

Fréttir

Öruggt hjá Middelfart

Danska liðið Middelfart vann í dag öruggan 3 - 0 (25-17.25-17.25-15) sigur á ÍF frá Fuglafirði í Færeyjum. Leikurinn var liður í riðlakeppni NCC, Norðurlandamóti félagsliða og fór fram í Digranesi.

Með sigrinum hefur Middelfart tryggt sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í febrúar. Lið Middelfart er vel að sigrinum komið og gæti farið langt í keppninni. Á morgun leika HK og ÍF um annað sætið í riðlinum. Það hefur þó enga þýðingu í sjálfu en leikið er uppá heiðurinn. Með sigri gæti lið HK þó brotið blað í sögu klúbbsins því lið HK hefur ekki ennþá unnið leik í NEVZA keppni og reyndar ekki heldur Evrópukeppni. Það er því til mikils að vinna fyrir HK pilta á morgun.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn