Volleyball.is

Íslenska piltalandsliðið lék í dag um 3. sætið gegn Færeyingum. Strákarnir sýndu ágætan leik á köflun en því miður dugði það ekki til sigurs. Færeyingar unnu nokkuð sannfærandi 3 - 1 sigur.

Mikasa

Fréttir

Piltarnir lágu aftur fyrir Færeyingum

Íslenska piltalandsliðið lék í dag um 3. sætið gegn Færeyingum. Strákarnir sýndu ágætan leik á köflun en því miður dugði það ekki til sigurs. Færeyingar unnu nokkuð sannfærandi 3 - 1 sigur.

Fyrsta hrinan var jöfn og spennandi, en Færeyingar höfðu þá frumkvæðið. Um miðbik hrinunnar dró í sundur með liðunum og lauk henni með öruggum sigri Færeyinga 25 - 15. Piltarnir voru þó fljótir að svara fyrir sig með  því að taka næstu hrinu 25 - 19. Þriðja hrinan var svo jöfn og spennandi lengst af en Færeyingar höfðu betur að lokum. Jóhann Eiríksson, fyrirliði íslenska liðsins, meiddist illa í hrinunni og kom það niður á leik liðsins. Færeyingar náðu að lokum að klára leikinn með því að vinna fjórðu hrinuna 25 - 16. Þrátt fyrir tapið sáust batamerki á leik liðsins. Zdravko þjálfari breytti uppstillingunni þannig að Egill lék í stöðu liberó, Alexander og Stefán á köntunum, Ágúst og Andreas á miðjunni og Lúðvík í uppspilinu nema í fyrstu hrinunni þegar Geomar spilaði upp. Allir leikmenn liðsins komu við sögu í dag. Með tapinu í dag er  ljóst að piltarnir enda í fjórða sætinu.

Stigahæstur í dag var Stefán Gunnar Þorsteinsson með 11 stig. Næstur kom Jóhann með 8 stig og Andreas með 7 stig.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn