Piparkökumót Fylkis
Kæru blakarar
Hið bráðskemmtilega Piparkökumót Fylkis verður haldið laugardaginn 10. desember nk. Mótið fer fram í Fylkishöll og hefst kl. 8.00.
Skráning er hafin og stendur til kl. 20:00 fimmtudaginn 8. desember.
Leikið verður í kvenna- og karlaflokkum á fjórum völlum og fer niðurröðun eftir fjölda þátttökuliða og verður ákveðin þegar fjöldi liða liggur fyrir.
Á mótinu verður jólaandinn í algleymingi og ýmsar kræsingar verða á boðstólnum.
Jólasveinahúfur velkomnar.
Óvænt nýbreytni á blakmóti hér á landi stígur sín fyrstu skref á mótinu J
Fyrirkomulag mótsins verður með þeim hætti að spilaðar verða tvær hrinur í leik og verður spilað eftir klukku en ekki stigum, 15 min hver hrina. Samanlagt stigaskor liðanna úr öllum leikjunum mun svo ráða úrslitum.
Þar sem engin leið verður að vita hver stendur uppi sem sigurvegari fyrr en öllum leikjum er lokið
verða allir að leggja sig fram allan tímann og ekkert lið hagnast af því að tefja leik þó forskotið sé gott og naumur tími eftir.
Þetta fyrirkomulag ætti að færa öllum keppnisblak frá fyrstu til síðustu mínútu, því það er ekki einu sinni
víst að liðið sem vinnur flestar hrinur vinni mótið!!!!
Enn einn kosturinn við þetta fyrirkomulag er að mótinu lýkur á réttum tíma og það er nú ekki amalegt að vita það
í annríki aðventunnar.
Veita munum vott og þurrt
Velgjörða þið njótið
Er mætið prúð með pí og kurt
á PIPARKÖKUMÓTIÐ
Tökum daginn frá, skellum okkur í jólabúninginn og skráum okkur áPIPARKÖKUMÓT FYLKIS 2011!!
Mótsgjald er kr. 10.000 og greiðist inn á reikning 328 - 26 - 7876 kt. 150766 4869. Takið fram fyrir hvaða lið er greitt.
Mótsstjóri verður Eggert Marinósson.




