Spennandi vetur framundan
mánudagur 30.ágúst 2010 - Ritstjórn Volleyball.is - Lestrar 159 - Athugasemdir (0) Senda á Facebook
Ritstjórn Volleyball.is hittist nú um helgina eftir gott sumarfrí og lagði línurnar fyrir veturinn.
Nú styttist í að tímabilið hefjist hjá inniblökurum og munum við færa ykkur fréttir af því helsta sem er í gangi
bæði innanlands og utan. Þennan tíma sem vefurinn var ekki uppfærður var margt í gangi sem verðskuldar að sagt sé frá og munum við
bæta úr því eftir því sem aðstæður leyfa. Líkt og áður mun Volleyball.is treysta á gott samband við lesendur
sína og hvetjum við ykkur til að senda okkur ábendingar, fréttir, myndir, auglýsingar eða hvaðeina sem þið teljið að eigið heima
á þessari síðu.




