Volleyball.is

Stjarnan lagði Þrótt í MIKASA deild karla í gærkvöld 1 - 3 (25-23,21-25,22-25,24-26).

Mikasa

Fréttir

Spjöldin á loft

Stjarnan lagði Þrótt í MIKASA deild karla í gærkvöld 1 - 3 (25-23,21-25,22-25,24-26).


Eins og tölurnar bera með sér var um hörkuleik að ræða og hefðu úrslitin hæglega getað orðið önnur. Róbert Hlöðversson, þjálfari Stjörnumanna, var veikur heima en í hans stað kom bróðir hans Vignir sem verið hefur frá í nokkurn tíma vegna bakmeiðsla. Vignir stóð fyrir sínu að vanda og skoraði mikilvæg stig fyrir Stjörnuna þrátt fyrir að vera ekki í sínu besta formi. Hjá Þrótti vantaði Guðmund P. Guðmundsson á kantinn en í hans stað lék Halldór Ingi Kárason sem alla jafnan leikur í stöðu frelsingja. Guðmundur jafnar sig nú eftir aðgerð á öxl og hann mun missa af nokkrum leikjum Þróttar í viðbót.

Þróttarar, sem hafa byrjað mótið afar illa, unnu fyrstu hrinuna og útlitið bara nokkuð gott með Stjörnuliðið "laskað" hinum megin netsins. Adam var þó ekki lengi í Paradís og Stjörnumenn börðust vel í næstu hrinum. Því til viðbótar jókst pirringur Þróttara við mótspyrnuna. Stjarnan landaði góðum sigri í 2. hrinu og fór vel af stað í þeirri þriðju. Um miðbik hrinunnar þurfti dómari leiksins, Jóhannes Stefánsson, að sýna Þrótturum gula spjaldið í tvígang fyrir óíþróttamannslega hegðun, fyrst Sævar Már Guðmundsson fyrirliði Þróttar og síðan Quentin Cucuel. Þetta kostaði 2 stig sem reyndust dýr þar sem hrinan tapaðist 23-25. Í 4. hrinunni komu Þróttarar sterkir til baka og höfðu hana í hendi sér lengst af. Á ótrúlegan hátt tókst þeim að kasta henni frá sér og þar með leiknum. Þróttarar geta nagað sig í handarbökin fyrir að hafa ekki komist lengra með Stjörnumenn sem léku með "vængbrotið" lið. 

Stjörnumenn gerðu vel í klára leikinn og sérstaklega er ánægjulegt að sjá yngri leikmennina eins og Geomar Orban, uppspilara, taka fullan þátt í leiknum og standa vel fyrir sínu.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn