Volleyball.is

Íslensku stelpurnar tryggðu sér bronsverðlaun á NEVZA mótinu sem fram fór í Færeyjum með því að leggja Norðmenn að velli 3 - 1. Sigurinn var nokkuð sannfærandi hjá íslenska liðinu sem lék jafnframt sinn besta leik í mótinu.

Mikasa

Fréttir

Stelpurnar tóku bronsið

Sáttar eftir leikinn
Sáttar eftir leikinn
Íslensku stelpurnar tryggðu sér bronsverðlaun á NEVZA mótinu sem fram fór í Færeyjum með því að leggja Norðmenn að velli 3 - 1. Sigurinn var nokkuð sannfærandi hjá íslenska liðinu sem lék jafnframt sinn besta leik í mótinu.


Leikurinn fór fram kl. 10.00 að morgni og virkuðu þær norsku syfjaðar í upphafi leiks. Íslenska liðið náði góðri forystu og hreinlega stakk það norska af með góðum kafla. Ísland komst í 18 - 8 en þá fóru þær norsku að ranka við sér. Með góðum kafla náðu þær að koma sér inn í leikinn. Það kom þó ekki í veg fyrir íslenskan sigur í fyrstu hrinunni 25-22. Næsta hrina var svo jöfn og spennandi allt til loka. Norðmenn náðu þó að knýja fram sigur 26 - 24. Íslensku stúlkurnar sýndu svo úr hverju þær eru gerðar með því að vinna 2 næstu hrinur 25 - 22 og þar með leikinn 3 - 1. Bronsið í höfn og jöfnun á besta árangri liðsins frá upphafi. Allt liðið lék vel í dag og má segja leikur liðsins hafi smollið saman. Auður Anna Jónsdóttir átti frábæran leik og gerði alls 23 stig. Berglind Gígja Jónsdóttir gerði 18 stig auk þess sem hún stóð sig vel bæði í móttöku og vörn. Sylvía Kolbrá var í uppspilinu allan tímann, Auður í díó, Hjördís og Berglind á kantinum og þær Hugrún og Lilja á miðjunni. Kristina Apostolova var í stöðu Liberó.  Þær María, Eva og Helena komu svo allar við sögu í leiknum.
Sigur liðsins í dag var sérstaklega sætur þar sem stúlkurnar höfðu áður leikið gegn Noregi í mótinu og tapaðist sá leikur 3 -1. 

Volleyball.is óskar stelpunum til hamingjum með árangurinn.


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn