Volleyball.is

Efstu lið Mikasa deildar karla, Stjarnan og HK, mættust í Ásgarði í gærkvöld. Líkt og fjölmargar viðureignir þessara liða fór leikurin í 5 hrinur. Heimamenn höfðu betur að þessu sinni og tróna nú ósigraðir á toppi deildarinnar eftir 4 leiki. 

Mikasa

Fréttir

Stjörnumenn á toppinn

Efstu lið Mikasa deildar karla, Stjarnan og HK, mættust í Ásgarði í gærkvöld. Líkt og fjölmargar viðureignir þessara liða fór leikurin í 5 hrinur. Heimamenn höfðu betur að þessu sinni og tróna nú ósigraðir á toppi deildarinnar eftir 4 leiki. 

Leikurinn var sýndur beint á Sporttv.is og er það virkilega ánægjulegt skref og vonandi að fleiri leikir fylgi í kjölfarið. 

Gestirnir úr Kópavoginum byrjuðu leikinn betur og unnu fyrstu hrinuna 25-22 eftir að hafa verið yfir lengst af. Heimamenn jöfnuðu leikinn strax í næstu hrinu með góðum kafla í lokin 25 - 21. HK tók aftur við sér í þriðju hrinunni og vann hana 25-23. Stjörnumenn þá komnir með bakið upp að vegg. Þrátt fyrir að lenda undir í byrjun hrinunnar létu þeir ekki bugast heldur unnu sig smátt og smátt inn í leikinn aftur. Um miðbik hrinunnar var sem allur vindur væri úr HK og fór svo að Stjarnan vann hrinuna 25 - 17. Oddahrinan framundan og flestir reiknuðu með blóðugri baráttu allt til enda. Sú varð ekki raunin þar sem Stjörnumenn hreinlega völtuðu yfir Kópavogsbúana. HK piltar gerðu hver mistökin á fætur öðrum og greinlegt að liðið hafði ekki úthald í svona erfiðan leik. Stjörnumenn tylltu sér á topp Miksadeildarinnar með þessu sigri, með 9 stig. HK piltar koma næstir með 8 stig. 

Stigahæstur í liði heimamanna var Emil Gunnarsson með 20 stig. Annars áttu flestir Stjörnumenn ágætan dag. Stjörnumenn stilltu þannig upp: Jóhann Már í uppspilinu, Emil og Vignir á kantinum, Róbert og Hannes á miðjunni og Hilmar í díó. Alexander Sævar Guðbjörnsson kom inná fyrir Hilmar um miðbik leiksins og stóð hann sig vel.  Hjá HK var Orri Þór Jónsson stigahæstur með 20 stig. Lið HK var þannig skipað: Ingólfur í uppspilinu, Kolbeinn og Einar á kantinum, Alexander og Magnús á miðjunni og Orri í díó. Þeir Kolbeinn og Magnús hafa lítið fengið að spila í vetur svo þetta var kærkomið tækifæri fyrir þá. Báðir komust þeir ágætlega frá leiknum.

Leikurinn var á köflum mjög vel spilaður af hálfu beggja liða og því hin besta skemmtun.  það var synd að ekki væru fleiri áhorfendur mættir á leikinn því frammistaða liðanna verðskuldaði fullt hús og það er alveg klárt að þeir áhforfendur sem mættu skemmtu sér vel. Stjörnumenn þurfa að gera betur í að markaðssetja leikina (á reyndar við um flest liðin).


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn