Volleyball.is

Fyrsta stigamótið af 4 verður haldið um helgina í Fagralundi í Kópavogi. Metþáttaka er í mótinu.

Mikasa

Fréttir

Strandblak - fyrsta stigamótið um helgina

Fyrsta stigamótið af 4 verður haldið um helgina í Fagralundi í Kópavogi. Metþáttaka er í mótinu.

Þátttakan kemur þó ekki á óvart þar sem íþróttin hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár. Strandblaksnefndin hefur unnið mjög gott starf við kynningu, útbreiðslu og markaðssetningu á íþróttinni. Enn er verið að byggja fleiri velli og nú nýverið var opnaður völlur í Garðinum. Mikil ásókn hefur verið í vellina í Fagralundi og oftar en ekki þarf að bíða eftir að komast að. 

Stigamótið hefst í kvöld kl. 18.00 og er reiknað með mótslokum um kl. 19.00 á laugardag. Reikna má með harðri keppni í sumar enda um landssliðssæti að keppa. Strandblakslandsliðin munu svo taka þátt í forkeppni ÓL sem fram fer á Kanaríeyjum í haust. 

Á sunnudaginn verður svo keppt í unglingaflokki.

Volleyball.is hvetur fólk til að mæta í Fagralund í kvöld og á morgun til að fylgjast með spennandi keppni.


Fastur í netinu

Jason Ívarsson fastur í netinu...einu sinni enn

Jason Ívarsson formaður BLÍ.

Jason Ívarsson formaður Blaksambands Íslands (BLÍ) er ,,fastur í netinu” að þessu sinni. Flestir sem þekkja formann BLÍ myndu segja að þar fari hógvær gleðigjafi. Jason var svo vinsamlegur að sitja fyrir svörum Volleyball.is en hann er jafnframt fyrsti viðmælandinn sem að er fastur í netinu. Það er engum blöðum um það að flétta að Jason náði að losa sig úr netinu eftir allt saman.

Lesa meira

Mynd augnabliksins

_mg_4762.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn